Síðasta önnin!

August 26th, 2008

Þá er síðasta önnin hafin í verkfræðinni - í bili. Gífurleg bókakaup fylgja hverri önn og fannst mér og Ara bækurnar hafa hækkað meira en góðu hófi gegnir í gær þegar við fórum í Bóksöluna… ekkert svo þykkar bækur á 9870 kr! Margföldum það x5 og fáum út 50 þúsund! Meira en það sem ég borga á ári fyrir að fá að vera í skólanum, skondið.

Í fyrra hermdi ég eftir Ara og setti verðmiðana á bókunum inn í kápuna. Gluggaði í eina bók áðan og var þar miði sem á stóð: Kr. 3576. Á vef bóksölunnar er þessi sama bók komin í 5636 kr! Þetta gerir rúm 37%

Bilun!

Sumarið

July 17th, 2008

Það er sannarlega sumar í blogginu mínu =) Vinna, útilegur, grillpartý, sund, sumarbústaðaferðir og Grey´s er m.a. það sem hefur einkennt þetta sumar hingað til. Jú og radioamatör námskeið, þó ég hafi nú ekki verið að sækja það sjálf ;)
Sumarið er meira en hálfnað og haustið verður komið áður en ég veit af! Þá hefst síðasta önnin mín í HÍ og líklegast sú síðasta í skóla á Íslandi… sem mér finnst nokkuð magnað. Andri fer síðan að koma og erum við bæði að spenna yfir okkur (þó kannski bara ég) og er ég að vona að honum finnist í lagi að eiga systur sem er svona ofur áhugasöm yfir náminu hans :) Það virðist nú samt ekki skipta máli hver á í hlut því ég er voða áhugasöm yfir því hvað fólk er að læra og hvað felst í því yfr höfuð og oft stend ég sjálfa mig að spyrja að því hvernig veðrið er í landinu sem viðkomandi býr í. Flestum finnst ég eflaust vera hnýsin og forvitin þegar ég spyr fólk spjörunum úr út á götu eða í Kringlunni en þó ber að skilja það þannig að ég sé forvitin um hlutinn sem það er að gera og hvernig það virkar en ekki manneskjuna sjálfa. Kannski þarf ég nú að fara að hemja mig og leita á wikipedia hvernig veðrið er í þessu eða hinu ríkinu í USA eða í Suður Þýskalandi?

Það helsta sem er að gerast þessa dagana er að ég er að bíða eftir smáskilaboðum eðe sms-i. Það mun væntanlega innihalda eitthvað á þessa leið “Guuuð, allt að gerast!” eða “Er á leiðinni á spítalann!!!!!” og þegar manneskjan svarar ekki í síma né svarar smsi 2 klst síðar þá fer maður að verða spenntur! Eeeen svo var allt í rólegheitunum ;) Ég verð spenntari með hverjum deginum og eins gott að skvísan fari að láta sjá sig! =)

BB - Brjálaði bíbí

June 1st, 2008

Ég á kolklikkaðan fugl.

Hann er forvitnasti páfagaukur sem ég veit um. Hann er útum allt; inn á baði á skápum (helst inn í þeim) og hurðum, elshúsi á köppum, fígúrum og borðum, speglum og stundum á gólfinu ef eitthvað forvitnilegt (að hans mati) er þar að finna! Það þarf því ekki að minnast á það að ef við erum heima, þá er fuglabúrið opið. Undantekningar eru gerðar þegar við erum að borða - enda fer fuglinn þá ofan í skálarnar, á diskana, nánast ofan í pottana eða vill komast upp í mann - allt saman hálf ógeðslegt.

Var rétt í þessu að taka þátt í Hróarskeldu leiknum hjá Rás 2… kemur fuglinn á stofuborðið, spígsporar aðeins í kringum tölvuna mína en hann veit að hann er rekinn burt með valdi ef hann vogar sér að ná í takkana af henni! Allt í einu vogar hann sér á lyklaborðið og rífur “Page Up” af lyklaborðinu! Hleypur með takkann í gogginum á borðinu og þegar ég er alveg að ná honum flýgur hann á búrið sitt með takkann enn í goggnum og sleppir honum í gegnum rimlana svo takkinn endar á botninum!

Ótrúlegur!

[6:6] (próf, ekki fylki)

May 13th, 2008

Þá er þetta bara búið! Alltaf hálf skrítið að vera búin í prófum… sérstaklega þegar maður er ekki með eitthvað “planað” að gera. Ég kom til dæmis bara heim kl. 17 í dag og bara…. hmmm… best að fara að þrífa… Eftir nokkrar mínútur kom þó þessi undursamlega vellíðunartilfinning sem fylgir því að klára prófin! Held ég eigi hreinlega eftir að sakna hennar (þ.e. tilfinningarinnar - ekki prófanna:) þegar ég klára allt námið!

Næst á dagskrá er SOFA!

Mannvit á fimmtudaginn, það verður spennó ;)

Jeij!!!

Útlönd og síðustu vorprófin í (ágætu) bili

April 21st, 2008

Ég ætla að leyfa mér að halda því fram að það séu ansi margir í útlöndum þessa dagana! Byrjaði allt á því að ég keyrði afa út á flugvöll í síðustu viku til að fara til Spánar, m&p eru í Ljubljana, ágætur hópur af HR skvísunum fór til NY og áfram til San Francisco í dag og Signý vinkona er að fara til Abu Dhabi á morgun!

Á meðan allt þetta skemmtilega fólk er í útlöndum sit ég hér heima að læra! 10 dagar - 6 próf, það er eins gott að ég haldi ansi vel einbeitingunni næstu 3 vikurnar!

Ég reyndi eitthvað að díla við ma og pa um að skipta… hvort þau hefðu ekki áhuga á að læra meðan ég myndi taka smá rúnt um Evrópu?! Einnig datt mér í hug að smygla mér í ferðatösku til Abu Dhabi en það er víst ekki hægt… ég er aðeins of stóð til að húka þar í sólarhring! Ég fæ myndir í staðinn af þessum ótrúlega flottu byggingm! :) Linda var svo búin að lofa að taka mynd af flottu rauðu brúnni í San Francisco handa mér :) Að lokum er Byggingin er að fara til Kína um miðjan maí, en ég ákvað að vera skynsama gellan… veit svei mér þá ekki hvað það var…

Ég get hins vegar “huggað” mig við það að það styttist alltaf í heimsreisuna góðu! ;) Milli skóla verður nefninlega farin ein ærleg svoleiðis! Hverjum mun ekki langa með þá! ;)

Það mánaðarlega

April 15th, 2008

= blogg

Lífið er þessa dagana verkefni, hópverkefni og fleiri hópverkefni. Það fer að verða komið gott af endalausum verkefnum sem tekur marga marga daga að leysa, komið fínt :) Sit hérna núna og horfi á Homework 10 (last one!) í Introduction to environmental engineering. Er að fara að reikna mengun frá strompi í álveri…

Tíðindi dagsins voru að ég keypti miða á Paul Simon, 1. júlí. Eric Clapton miðinn bíður líka spenntur upp í skáp eftir að verða notaður 08.08.08. Vann í SÍBS í síðustu viku og leið eins og milljarðarmæring í 1 dag, þrátt fyrir að hafa einungis unnið 10.000 kr. Þetta er spurningin um það að vinna! ;) Harpa er svo búin að plana ættarmót í sumar og ég er strax farin að hlakka til. Að lokum er einn væntanlegur í Kópavoginn í haust, það verður spennó ;)

Tíðindalaus tími… ætla að fara að reikna út hversu álver eru hrikaleg… ble ble

Austurlandið

March 14th, 2008

Tíminn líður ótrúlega hratt! Páskarnir eru að koma í næstu viku og ég & Ari á leiðinni austur á þriðjudaginn. Hlökkum ótrúlega til (jáhá, hann líka! ;) Planið er að taka súper lærdóm á þetta mest allan tímann og svo FRÍ með súkkulaði! Vonandi ætlum við á skíði, a.m.k. verða nýju skíðagræjur gæjans teknar með - tölvustýrð skíði? Hver á ekki svoleiðis! Hah!

Ég ætla síðan að fara í langþráða heimsókn á Neskaupsstað, fara út að hlaupa fyrir sunnan fjörð í kuldanum, borða mömmumat, horfa á stóra TV-ið, fara á rúntinn, í heimsóknir og skoða nýjustu framkvæmdirnar! Alltof mikið planað á stuttum tíma en hvenær er það ekki svoleiðis?

Annars er ég í fimmtudagsfílingnum enda var ég að klára stórt forritunarverkefni í tölulegri greiningu sem gerir mig very happy… og kolruglaða sem kallar á svefn!

… Later!

Kennari með húmor í lagi!

February 27th, 2008

Kennarinn minn í húsagerð er snillingur, hann sendi mail á okkur sem var eftirfarandi:

Ágætu nemar;
FYRIRLESTUR Á MORGUN, FIMMTUDAG FELLUR NIÐUR

ég er lagstur í rúmið með hita, eða eins og norskur félagi minn búsettur hérlendis sagði í svipuðum kringumstæðum “ii morgunn vakknaddi ek rumliggjandi” - ég ætla að reyna að takmarka tapið með skynsemi og halda mig innivið fram á helgi. Ég mun senda ykkur verkefni #3 um leið og ég kemst í gögnin mín uppi á stofnun (þar er nefnilega ekki netaðgangur að þeim úr fjarska).

Bestu kveðjur
og vona að þið saknið mín hræðilega mikið á morgun

Hehe, brill ;) Fyrir forvitna og einstaklega áhugasama erum við að fara að hanna hús í verkefni #3… hlakka til :) Skilyrði voru þó sett á fermetrafjöldann svo við enduðum ekki í 500 fermetra húsi! Hehe

Fyrir þá enn áhugsamari; blað umhverfis- og byggingaverkfræðinema ... Upp í vindinn (já punktarnir eru með í nafninu!) er komið út. Fremst ber að líta á einkar skemmtilega mynd, athuga vel neðst til vinstri… Blaðið er svo stútfullt af fróðlegum greinum og ætli það sé ekki að finna á helstu stöðum landsins! ;)

Nefmælt!

February 21st, 2008

Ég hef aldeilis verið nefmælt þessa vikuna, gífurlegt kvef að þjá mig og fer ég úr tíma á 20 min fresti til að snýta mér… stuð! Þetta hefur gert það að ég hef einungis farið einu sinni þessa vikuna upp á 15. hæðina… bæti úr því síðar… á nóg með gígantískt kvef, hálsbólgu og tonn af verkefnum eins og er.

Er búin með öll heimaverkefni vikunnar (jebbs… og það er fimmtudagskvöld, klukkan að verða hálf tólf… haha) og er að bíða eftir Despó á rúv plús… þessir plúsar eru helvíti góðir…

Leikhús og læri lær á planinu um helgina. Úrslitin í Íslands Júró, held að Hey-ið og Hó-ið vinni þetta, hehe…

despó byrjað =)

Ameríkublogg

February 12th, 2008

Í stað þess að byrja á verkefninu mínu í umhverfisskipulagi Þróun kerfis samgangna til nútímans ákvað ég að blogga. Skil innan 5 og hálfs klukkutíma… stuð. Er nú samt búin með forsíðuna og þá finnst mér nú alltaf hemlmingur verkefnisins vera búinn! Góð hugsun það!

Florida var ansi mögnuð. Í Bandaríkjunum er allt saman stórt og mikið; maturinn, húsin, bílarnir, vegirnir, mollin, garðarnir, rússíbanarnir og auðvitað fólkið! Skil ágætlega að þetta fólk sé að springa miðað við framboðið á djúsímat! Amerískar pönnukökur með sýrópi… nammi namm. Veðrið var gott, 30 stig og sól þegar við fórum í Disney á síðasta deginum mínum, ekki amalegt það :)

Disney og Universal Studios voru æði. Hitti t.d. Simpsons í Universal, upplifiði hvirfilbyl, fór í 4D bíó og stökk af hæstu byggingunum í New York eins og Spiderman! Í Disney fór ég í frægu höllina, hitti Mikka&Mínu og Aladdin, fór í sjóræningjaferð með Jack Sparrow í Pirates of the Caribbean og tók mynd af mér við bröttustu götu heims í San Fransisco. Kennedy Space Center var engu síðra. Sá geimskutlur, NASA og fór í geimskutluhermi! Ég var þó ekki jafnheppin og familían sem varð lengur í Florida og sá geimskotið sl. fimmtudag, en ég á þó mynd af því ;)

Húsið sem við bjuggum í var líka stórt eins og allt í Ameríku. 4 svefnherbergi, stórar stofur, 2 baðherbergi, sundlaug og heitipottur. Við vorum í lokuðu hverfi og það var alveg ekta amerískt. Engu síðra en Wisteria Lane í despó! Eðlur komu reyndar stundum í heimsókn við litla kátínu af minni hálfu.

Ég smakkaði kebé kjöt á japönskum stað, dýrasta kjöt í heimi. Nautin eru alin upp á bjór, fá nudd og allskonar lúxus! Þetta var líka ofsalega gott á bragðið og var allt saman eldað fyrir framan okkur. Rosa show það. Á öðrum veitingastað fékk ég mestu sterakartöflu sem ég hef séð, var eins og 10 íslenskar kartöflur lagðar saman. Á sama stað var líka hægt að velja úr 800 víntegundum… sannarlega allt stórt og mikið í Ameríku!

Jæja, best að byrja að spá í kortum… planið er svo að skella sér í nýja World Class í Smáranum í kvöld til að hlaupa af sér amerísku pönnukökurnar… hvernig ætli sé að hlaupa á upp á 15. hæð og horfa niður? Heh, þetta verður spennó ;)